Við sýnum lit
Október hefur lengi haft tilfinningalegt gildi fyrir starfsmenn Eirbergs enda snertir krabbamein og þá sérstaklega brjóstakrabbamein okkar daglega starf. Stór hluti þeirra kvenna sem misst hafa brjóst í krabbameinsmeðferð á Íslandi eru skjólstæðingar hjúkrunarfræðings Eirbergs.
Á hverjum degi tökum við á móti konum, bjóðum ráðgjöf og hjálpum að finna leiðir til að minnka áhrif þessa sjúkdóms í daglegu lífi kvenna. Ráðgjöf hjúkrunarfræðings og annarra sérfræðinga eftir brjósta- og skurðaðgerðir er í boði alla virka daga milli 9-16 á skrifstofum okkar að Stórhöfða 25. Senda má póst á Gígju hjúkrunarfræðing til að bóka tíma, gigja@eirberg.is.
Við sýnum lit, erum stuðningsaðili krabbameinsfélagsins og seljum slaufuna í verslunum okkar með stolti.
Verið velkomin í verslanir okkar að Stórhöfða 25 og í Kringlunni